Skip to main content
Snertiofnæmi

Imidazolidinyl urea

Eftir júlí 2, 2012Engar athugasemdir

Imidazolidinyl urea er rotvarnarefni og einn hinna svokölluðu formalínlosara (formaldehyde releasers). Unnt er að hafa ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og imidazolidinyl urea en einnig er hægt að hafa ofnæmi fyrir formalíni sem þeir losa úr læðingi (sjá sér flipa). Hafi maður ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og imidazolidinyl urea er ekki þar með sagt að maður hafi einnig ofnæmi fyrir formalíni. Til er krossofnæmi þannig að hafi maður ofnæmi fyrir imidazolidinyl urea hefur maður einnig ofnæmi fyrir diazolidinyl urea (sjá að neðan um það efni).

Imidazolidinyl urea er stundum að finna í útblæstri bíla, sígarettureyk, snyrtivörum eins og felurum, mascara, augnskjugga og augnblýanti, naglherði, kremum, púðri, svitalyktareyðum, sjampói, rakstursvörum, húðhreinsivökvum, hágæðapappír, hreinsivörum til heimilisnota, plastvörum, gúmmívörum og í reyk (kol og við).

Fyrir utan imidazolidinyl urea eru a.m.k. eftirfarandi formalínlosarar á markaðinum:

  • Quaternium 15 sem gengur einnig undir nöfnunum:
    • Dowicil 200
    • chloroallyl methenamine chloride
    • N-(3-Chloroallyl)hexaminium chloride
    • hexamethylenetetramine chloroallyl chloride
    • chloroallyl chloride, 3,5,7-triaza-1-azoniaadamantane
    • 1-(3-chloroallyl)-, chloride)
    • Sjá sér grein.
  • Diazolidinyl urea, einnig þekkt sem
    • Germall II, N,N’-bis(hydroxymethyl) urea
    • 1-(1,3-Bis(hydroxymethyl)-2,5-dioxoimidazolidin-4-yl)-1,3-bis(hydroxymethyl)urea.
    • Sjá sér grein.
  • DMDM Hydantoin, einnig þekkt sem
    • 1,3-cimethylol-5,5-dimethylhydantoin
    • 1,3-Bis(hydroxymethyl)-5,5-dimethylimidazolidine-2,4-dione.
    • Sjá sér grein.
  • Grotan BK, einnig þekkt sem
  • 2-hydroxymethyl-2-nitro-1,3 propanediol (2-nitro-2-(hydroxymethyl)-1,3-propanediol). Einnig þekkt sem
    • tris nitro, trimethylolnitromethane
    • nitroisobutylglycerol og
    • tris(hydroxymethyl)nitromethane.
    • Sjá sér grein..
  • Bakzid P.
  • Biocide DS 5249.
  • Dantoin MDMH.
  • KM 103.
  • Paraformaldehyde.
  • Parmetol K50.
  • Polyoxymethylene urea.
  • Preventol D1, D2 og D3.

Imidazolidinyl urea gengur einnig undir nöfnunum:

Biopure 100, Germall 115, Imidurea, Imidurea NF, N,N“-Methylenebis(N’-(3-(hydroxymethyl)-2,5-dioxo-4-imidazolidinyl)urea, Sept 115, Tristat 1U og Unicide U-13.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út