Skip to main content
Snertiofnæmi

DMDM Hydantoin

Eftir júlí 2, 2012Engar athugasemdir

DMDM hydantoin er rotvarnarefni sem er stundum að finna í alls kyns snyrtivörum, sjampói, kremum og í útvortis vörum til lækninga. Það er einnig stundum notað í plöntueyða (herbicides), í litaframköllun, latexmálningu, í kælivökva fyrir vélar, gólfvax, litaðan pappír, fjölritunarpappír, blek og lím.

DMDM hydantoin er einn hinna svokölluðu formalínlosara (formaldehyde releasers). Unnt er að hafa ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og DMDM hydantoin en einnig er hægt að hafa ofnæmi fyrir formalíni sem þeir losa úr læðingi (sjá sér flipa).

Hafi maður ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og DMDM hydantoin er ekki þar með sagt að maður hafi einnig ofnæmi fyrir formalíni. Það er þó þannig að til er krossofnæmi (allergic cross-reactivity) þannig af hafi maður ofnæmi fyrir DMDM hydantoin hefur maður einnig ofnæmi fyrir formalíni.

Fyrir utan DMDM hydantoin eru a.m.k. eftirfarandi formalínlosarar á markaðinum:

  • Quaternium 15 sem gengur einnig undir nöfnunum:
    • Dowicil 200, chloroallyl methenamine chloride
    • N-(3-Chloroallyl)hexaminium chloride
    • hexamethylenetetramine chloroallyl chloride
    • chloroallyl chloride, 3,5,7-triaza-1-azoniaadamantane
    • 1-(3-chloroallyl)-, chloride).
    • Sjá sér grein.
  • Imidazolidinyl urea sem gengur einnig undir nöfnunum:
    • Biopure 100
    • Germall 115
    • Imidurea
    • Imidurea NF
    • N,N“-Methylenebis(N’-(3-(hydroxymethyl)-2,5-dioxo-4-imidazolidinyl)urea
    • Sept 115
    • Tristat 1U
    • Unicide U-13.
    • Sjá sér grein.
  • Diazolidinyl urea sem er einnig þekkt sem
    • N- (hydroxymethyl)-N- (1,3- dihroxymethyl-2, 5-dioxo-4-imidazolidinyl)-N’-(hydroxymethyl) urea
    • N,N’-bis(hydroxymethyl)urea
    • 1-(1,3-bis(hydroxymethyl)-2,5-dioxoimidazolidin-4-yl)-1,3-bis(hydroxymethyl)urea
    • Germaben II
    • Germall II
    • II-E.
    • Sjá sér grein.
  • Grotan BK, einnig þekkt sem
  • 2-hydroxymethyl-2-nitro-1,3 propanediol (2-nitro-2-(hydroxymethyl)-1,3-propanediol). Einnig þekkt sem
    • tris nitro
    • trimethylolnitromethane
    • nitroisobutylglycerol
    • tris(hydroxymethyl)nitromethane.
    • Sjá sér grein.
  • Bakzid P.
  • Biocide DS 5249.
  • Dantoin MDMH.
  • KM 103.
  • Paraformaldehyde.
  • Parmetol K50.
  • Polyoxymethylene urea.
  • Preventol D1, D2 og D3.

DMDM Hydantoin er einnig þekkt sem:

  • Bis(hydroxymethyl)-5,5-dimethylhydantoin
  • 1,2-Dimethylol-5,5-dimethyl hydantoin
  • 1,3-Dimethylol-5,5-dimethylhydantoin
  • 1,3-bis(hydroxymethyl)-5,5-dimethyl-2,4-imidazolidinedione
  • 1,3-Bis(hydroxymethyl)-5,5-dimethylimidazolidine-2,4-dione
  • Dimethyloldimethyl hydantoin
  • DMDMH
  • Dantoin DMDMH
  • Dantion DMDMH 55
  • Dantoguard
  • Dimethylol-5,5-dimethylhydantoin
  • Glydant
  • Glydant Plus
  • Hydantoin
  • Mackgard DM
  • Nipaguard DMDMH.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út