Skip to main content

Starfsfólk

Ásgerður Sverrisdóttir

Tannlæknir

Bolli Bjarnason dr. med.

Húð- og kynsjúkdómalæknir

Bryndís Björnsdóttir

Tanntæknir

Dagný Ólafsdóttir M.Sc.

Snyrtifræðimeistari og næringarfræðingur, M.Sc.

Ellen Flosadóttir M.Sc.

Tannlæknir
Sérgr.: Tann- og munngervalækningar

Hlíf Gestsdóttir

Ritari

Margrét Birgisdóttir

Snyrtifræðimeistari

Anna María Jónsdóttir

Snyrtifræðimeistari

Þóra Hvanndal

Ritari

Bolli Bjarnason dr. med.


Sérmenntun:
 Húð- og kynsjúkdómalækningar.

Starfssvið: Lýtahúðlækningar, alm. húðlækningar og kynsjúkdómalækningar.
Kennari í húð- og kynsjúkdómum við læknadeild Háskóla Íslands.

Bolli hefur m.a. starfað við lýtahúðlækningar, almennar húðlækningar, barnahúðlækningar, kynsjúkdómalækningar og atvinnuhúðsjúkdómalækningar (húðofnæmi). Starfsvettvangar hafa ýmist verið á sjúkrahúsum, göngudeildum eða læknastofum í Bandaríkjunum, Svíþjóð (Karólínska sjúkrahúsið) og í Danmörku í alls 9 ár. Bolli varði doktorsritgerð sína 1999 við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Ritgerð hans fjallar um lasertækni og ofnæmi og ber titilinn „Laser Doppler Imaging of Patch Tests – A Methodological and Comparative Study with Visual Assessments“.

Bolli hefur tekið þátt í fleiri tugum rannsókna bæði erlendis og hérlendis og hlotið hátt í 100 vísindastyrki eða vísindaverðlaun, m.a. frá Dermatology Foundation (Research Fellowship Award) í Bandaríkjunum. Hann hefur metið tugi vísindaumsókna um styrki frá virtum vísindasjóðum erlendis og á Íslandi.

Bolli hefur ritrínt vísindagreinar fyrir mörg af virtustu húðvísindaritum heims svo sem Journal of Investigative Dermatology og Contact Dermatitis. Hann hefur birt nokkra tugi vísindagreina m.a. í ritrýndum PubMed vísindaritum (Medline). Hann hefur tekið þátt í sjónvarps- og útvarpsviðtölum, sett saman fræðslubæklinga fyrir almenning erlendis og á Íslandi og eftir hann hafa verið birtar tugir greina í íslenskum fréttablöðum og fræðsluritum. Fræðsluefnið á heimasíðunni er samið af Bolla. Hann hefur verið boðinn fyrirlesari víða, haldið erindi á ársþingi Society for Investigative Dermatology í Bandaríkjunum og haldið yfir 100 erindi/ kynningar í flestum heimsálfum heims fyrir lækna, mest í Bandaríkjunum en einnig á Íslandi.

Bolli kenndi við læknadeild Karolinska Institutet og í Bandaríkjunum er hann bjó ytra. Hann hefur handleitt nema í rannsóknanámi og kennt læknanemum húðsjúkdóma við læknadeild Háskóla Íslands eftir að hann flutti til Íslands 2001.

Hann hefur sérfræðiréttindi í húð- og kynsjúkdómum á flestum norðurlandanna og hlaut ótakmarkað lækningaleyfi í því fylki í Bandaríkjunum sem hann bjó í er hann starfaði þar.

Hann hefur hlotið viðurkenningu fyrir viðurkennda framhaldsmenntun frá American Academy of Dermatology (Félag bandarískra húðlækna) og The American Medical Association (Læknafélag Bandaríkjanna).

Hann er meðlimur í tugum læknafélaga eða læknasamtaka erlendis og á Íslandi.

Hann var formaður Félags ísl. húðlækna í mörg ár og er gjaldkeri þess félags er þetta er skrifað.

Bolli er stjórnarmaður í Norðurlandaráði húðlækna (Nordic Dermatology Association) og situr í menntanefnd ráðsins. Hann situr jafnframt fyrir Íslands hönd í ritstjórn Forum for Nordic Dermatovenerelogy sem er fagrit fyrir húð- og kynsjúkdómalækna á Norðurlöndum. Hann á sæti í orlofsnefnd Læknafélags Íslands.

Ellen Flosadóttir M.Sc.,Tannlæknir

Sérmenntun: Tann- og munngervalækningar.

Starfssvið: Alm. tannlækningar, tann- og munngervalækningar.

Dósent í tann- og munngervalækningum við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út