Skip to main content
Snertiofnæmi

2,5-Diazolidinyl urea

Eftir júlí 2, 2012Engar athugasemdir

Diazolidinyl urea er rotvarnarefni sem er stundum að finna í alls kyns snyrtivörum, kremum og útvortis í vörum til lækninga. Það er einn hinna svokölluðu formalínlosara (formaldehyde releasers). Unnt er að hafa ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og diazolidinyl urea en einnig er hægt að hafa ofnæmi fyrir formalíni sem þeir losa úr læðingi (sjá sér grein).

Hafi maður ofnæmi fyrir stökum formalínlosara eins og diazolidinyl urea er ekki þar með sagt að maður hafi einnig ofnæmi fyrir formalíni. Það er þó þannig að til er krossofnæmi (allergic cross-reactivity) þannig af hafi maður ofnæmi fyrir diazolidinyl urea hefur maður einnig ofnæmi fyrir formalíni eða öðrum formaldehydelosara sem heitir imidazolidinyl urea (sjá að neðan um hann).

Fyrir utan diazolidinyl urea eru a.m.k. eftirfarandi formalínlosarar á markaðinum:

  • Quaternium 15 sem gengur einnig undir nöfnunum:
    • Dowicil 200, chloroallyl methenamine chloride
    • N-(3-Chloroallyl)hexaminium chloride
    • hexamethylenetetramine chloroallyl chloride
    • chloroallyl chloride
    • 3,5,7-triaza-1-azoniaadamantane
    • 1-(3-chloroallyl)-, chloride).
    • Sjá sér grein.
  • Imidazolidinyl urea sem gengur einnig undir nöfnunum:
    • Biopure 100
    • Germall 115
    • Imidurea
    • Imidurea NF
    • N,N“-Methylenebis(N’-(3-(hydroxymethyl)-2,5-dioxo-4-imidazolidinyl)urea
    • Sept 115
    • Tristat 1U
    • Unicide U-13.
    • Sjá sér grein.
  • DMDM Hydantoin, einnig þekkt sem
    • 1,3-cimethylol-5,5-dimethylhydantoin
    • 1,3-Bis(hydroxymethyl)-5,5-dimethylimidazolidine-2,4-dione.
    • Sjá sér grein.
  • Grotan BK, einnig þekkt sem
  • 2-hydroxymethyl-2-nitro-1,3 propanediol (2-nitro-2-(hydroxymethyl)-1,3-propanediol). Einnig þekkt sem
    • tris nitro
    • trimethylolnitromethane
    • nitroisobutylglycerol
    • tris(hydroxymethyl)nitromethane.
    • Sjá sér grein.
  • Bakzid P.
  • Biocide DS 5249.
  • Dantoin MDMH.
  • KM 103.
  • Paraformaldehyde.
  • Parmetol K50.
  • Polyoxymethylene urea.
  • Preventol D1, D2 og D3.

Diazolidinyl urea er einnig þekkt sem

  • N- (hydroxymethyl)-N- (1,3- dihroxymethyl-2, 5-dioxo-4-imidazolidinyl)-N’-(hydroxymethyl) urea
    • N,N’-bis(hydroxymethyl)urea
    • 1-(1,3-bis(hydroxymethyl)-2,5-dioxoimidazolidin-4-yl)-1,3-bis(hydroxymethyl)urea
    • Germaben II
    • Germall II
    • II-E.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út