Hér er að ferðinni efni sem er stundum notað sem bætiefni í matvæli til að rotverja þau. Bætiefnum (food additives) í mat er gefið svokallað „E“ númer þar sem „E“ stendur fyrir „Evrópu“. Natríumbensóat hefur E númerið 211 en skrána má finna í heild á netslóðinni http://www.ukfoodguide.net/enumeric.htm. Það er ekki óalgengt að finna natríumbenzóat í súrum matvælum eins og gosdrykkjum, ávaxtasöfum, sultum, edikgrunnuðum salatsósum (dressing), hlaupi, sýrðum ávöxtum eins og gúrkum og kryddum eða sósum (condiments). Sýran finnst af náttúrunnar hendi í trönuberjum (cranberries), eplum, kanil og hvítlauk.
Natríumbensóat er stundum einnig að finna í sápum, sjampói, alkóhólgrunnuðum munnskolvökvum, hóstamixtúrum og silfurfægilegi.
Þessa ofnæmisvaka er stundum einnig að finna í snyrtivörum og lyfjum.
Fyrir utan snertiofnæmi getur natríumbenzóat einnig valdið snertibráðaofnæmi án þátttöku ónæmiskerfisins (non-immunological contact urticaria) (sjá greinina „Ofnæmi„).
Natríumbenzoat gengur a.m.k. einnig undir eftirfarandi heitum:
- AI3-07835
- Antimol
- Benzoan sodny
- Benzoan sodny (tékkneska)
- Benzoate of soda
- Benzoate sodium
- Benzoesaeure (na-salz)
- Benzoesaeure (na-salz) (þýska)
- Benzoic acid, sodium salt
- CCRIS 3921
- Caswell No. 746
- E211
- EINECS 208-534-8
- EPA Pesticide Chemical Code 009103
- FEMA No. 3025
- FEMA Number 3025
- HSDB 696
- NaC6H5CO2
- Natrium benzoicum
- Sobenate