Skip to main content

Háreyðing

Áberandi hárvöxtur eða óvelkomin hár

Hjá konum er helst að finna óvelkomin hár í andliti, á hálsi, við bikinilínur og á innanverðum lærum eða útlimum.
Slík hár geta myndast vegna aukinna áhrifa karlhormóna í konum en einnig eru til dæmi um ofvöxt hára án slíkra áhrifa.

Hjá körlum eru óvelkomin hár aðallega á baki og herðum.

Hvað er háreyðing?

  •  Við bjóðum upp á langtímalausnir við óvelkomnum hárum
  • Ein lausn er lyfjameðferð, til dæmis til að minnka áhrif karlhormóna í konum
  • Önnur leið er varanleg háreyðing með ólíkum gerðum lasera
  • Lasermeðferð virkar best gegn lituðum hárum og getur eytt lituðum inngrónum hárum
  • Athugið að meðferðin virkar best áður en hárin tapa lit

Hvernig bóka ég tíma í háreyðingu?

  • Við mælum með tíma hjá húðlækni til að tryggja rétta greiningu og viðeigandi meðferð
  • ATHUGIÐ að til eru meðferðaraðilar á Íslandi án nauðsynlegra leyfa sem krefja viðeigandi sérfræðimenntunar umsjónalæknis
  • Þú getur hringt í okkur til að fá tíma hjá húðlækni eða beint til meðferðar
Varanleg háreyðing með laser fjarlægir svört hár. Meðferðirnar eru sársaukalitlar og virka einnig vel gegn svörtum inngrónum hárum. Laserinn er öflugastur áður en hárin byrja að missa lit. Æskilegt er að sérfræðilæknir kanni ástæður hárvaxtar.

PDF skjal:

Hair Removal – Patient Brochure. Smelltu til að skoða

Nokkrar ástæður áberandi hárvaxtar

Eðlilegur hárvöxtur

Eðlileg dreifing hára er misjöfn hjá fólki og er ákveðin af kynþáttum. Þannig hafa t.d. hvítar konur sem hópur meira af andlitshárum en konur af asískum uppruna og svertingjar.

Óeðlilegur hárvöxtur

Ofloðna (hirsutism). Eðlilegt er að konur hafi fíngerð, föl, litlítil og mjúk hár á svæðum þar sem körlum er einum ætlað að hafa áberandi gróf hár svo sem í anditi og á bringu. Slíkum vexti hára hjá körlum er stjórnað af karlhormónum (androgens). Ofloðna er það þegar kvenfólk fær slíkan hárvöxt vegna aukinna karlhormóna.

Aukning í karlhormónum, eða hormónum með svipaðar verkanir, getur verið tilkomin frá eggjastokkum, nýrnahettum eða heiladingli. Lyf, ekki síst til að auka vefjamassa, geta innihaldið karlhormóna eða hormóna með svipaða verkun. Enn önnur lyf geta leitt til aukinnar framleiðslu karlhormóna.

Hárofvöxtur (hypertrichosis). Hér er um að ræða aukinn hárvöxt án áhrifa karlhormóna, t.d. á enni, gagnaugum, ofarlega á kinnum og á milli augna. Slíkur vöxtur hára getur verið tilkominn t.d. vegna skjaldkirtilsvandamáls, lyfja eða vegna lystarstols (anorexia nervosa).

ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ ÁBERANDI HÁR SÉU EKKI BARA FJARLÆGÐ ÁN ÞESS AÐ SÉRFRÆÐILÆKNIR HAFI METIÐ HVORT ÁSTÆÐA SÉ TIL AÐ RANNSAKA FREKAR ÁSTÆÐUR HÁRVAXTARINS.

Provided courtesy of Mervyn Patterson, MD and reprinted with permission by Palomar Medical Technologies, Inc.

Provided courtesy of David Vasily, MD and reprinted with permission by Palomar Medical Technologies, Inc.

Hvar eru óvelkomin hár staðsett?

Hjá konum eru óvelkomin hár helst að finna í andliti, á hálsi, við bikinilínur og á innanverðum lærum/útlimum. Hjá körlum aðallega á baki og herðum.

Hvað er til ráða annað en að plokka, raka eða beita vaxmeðferð gegn pirrandi hárum?

Lyfjameðferð

Ofloðna (sjá að ofan) kallar stundum á meðferð til að minnka áhrif karlhormóna eða annarra hormóna með svipaða verkun. Aðgerð getur stundum átt við.

Efnið Eflornitín dregur úr hraða hárvaxtar. Það hamlar óafturkræft ensímið ornitín dekarboxýlasi sem tekur þátt í framleiðslu hárleggs (scapus pili) í hárslíðrinu (hair follicle).

Háreyðing með laser

MIKILVÆGT ER AÐ SÉRFRÆÐILÆKNIR GREINI HÁRVANDAMÁL FYRIR MEÐFERÐ ÞVÍ MARGIR SJÚKDÓMAR GETA LEGIÐ AÐ BAKI SEM ÞARF AÐ GREINA OG GETA KALLAÐ Á AÐRA MEÐFERÐ. EINNIG GETA ÝMSAR LÆKNISFRÆÐILEGAR ÁSTÆÐUR STAÐIÐ Í VEGI FYRIR MEÐFERÐ.

Við hvernig hárum er laser notaður?

Lituð hár eru oftast mest tuflandi og pirrandi. Það eru einmitt þannig hár sem hægt er að fjarlægja varanlega með nútíma læknalaserum.

Hár missa lit með árunum og árangur meðferða minnkar með minni lit. Gott er því að meðhöndla hár snemma og ekki síst því þau geta orðið inngróin og valdið viðvarandi sýkingum ekki síst í nárum. Erfitt getur reynst að eiga við slík hár.

Grein

Verkunarháttur lasera

Nokkrar gerðir lasera eru til á markaðinum til að eyða lituðum hárum. Við notum ólíkar gerðir eftir tilfellum. Laserar eiga það sameiginlegt að gefa frá sér ljósorku sem svartur litur í hárunum dregur til sín. Orkan skaðar hárræturnar og hárin hætta þannig að vaxa.

Grunnatriði varðandi alla lasera er að þeim takist að gefa nægjanlega ljósorku á viðeigandi stað í húðinni þannig að orkan valdi varanlegum skaða á hárrótunum án aukaverkana. Til þess að þetta takist þarf laserinn að vera af hæsta mögulega gæðaflokki. Margir laserar á markaðinum eru ekki af slíkum gæðum og tekst því ekki að fjarlægja hár vel og varanlega (permanent hair loss).

Hvers er að vænta af meðferð?

Vænta má að lituð hár eyðist endanlega séu þau dökk. Enginn laser eyðir mjög litlitlum hárum.

Aðgerðir fyrir og eftir lasermeðferð

  • Markmið lasermeðferðarinnar er að koma laserljósinu inn í húðina til að hnjaska hárræturnar. Séu hárin vel sýnileg fyrir meðferð eru þau það löng að svarti litur þeirra dregur til sín hluta laserljóssins sem hárrótunum er ætlað. Þetta bæði minnkar árangur meðferðar og veldur vægum sting ef hárin sviðna.
  • Álitið er að bestum árangri meðferðar sé náð séu hárin þannig að maður finni þau með fingrunum án þess að sjá þau. Þá virka broddarnir eins og litlir móttakarar fyrir ljósið inn til hárrótarinnar. Til að svo megi verða velur fólk oftast að raka hárin nokkru fyrir meðferð. Næst best er að raka hárin án þess að þau hafi myndað brodda. Þó verst sé að plokka þau er ekki þar með sagt að árangur sé ekki góður af meðferð.
  • Forðast skal sólarljós í a.m.k. 1-2 vikur fyrir og eftir meðferð. Sólartengdur roði eða brúnka þarf að hafa horfið algjörlega fyrir meðferð.
  • Brúnkukrem þurfa að hafa horfið algjörlega úr húðinni fyrir meðferð.
  • Æskilegt er að  húðin verði ekki fyrir miklum hita rétt fyrir og eftir meðferð t.d. með heitum böðum.
  • Sérfræðilæknir tekur afstöðu til hvort útvortis eða innvortis lyfjameðferð þurfi að stöðvast á meðan á meðferð stendur.

Hvernig fer meðferðin fram?

Til að tryggja öryggi þitt eru sett á þig sérstök gleraugu sem vernda augun fyrir laserljósinu. Góð regla er að hafa augun lokuð á meðan á meðferð stendur en það er engin skylda. Í algjörum undantekningartilfellum er húðin deyfð með deyfikremi fyrir meðferð.

Laserhausinn er látinn leika um meðferðarsvæðið eftir ákv. reglum. Kæling í hausnum ver húðina fyrir hita ljóssins. Hver meðferð tekur 15-45 mín. eftir stærð meðferðarsvæðisins.

Óháð laserum þarf alltaf nokkrar meðferðir fyrir varanlega háreyðingu. Tímabil á milli meðferða getur verið frá 2 – 8 vikum eftir meðferðarsvæðum. Ástæða þessa er að best er að veita lasermeðferð þegar hárin eru í vaxtarfasa og næst það best með ákv. tímabilum milli meðferða á ólíkum svæðum.

Hvenær kemur árangur meðferðar fram og hve lengi varir hann?

Árangur kemur fram hægt og rólega. Árangurinn er varanlegur séu hárin nógu dökk.

Kostir lasermeðferðar

  • Lasermeðferðir gegn hárum eru sársaukalitlar eða sársaukalausar með þeim búnaði sem við notum. Þær eru mjög áhættulitlar.
  • Unnt er að fara beint til vinnu að þeim loknum.

MEÐFERÐIN HJÁLPAR EINNIG GEGN LITUÐUM INNGRÓNUM HÁRUM.

BESTI ÁRANGUR LASERMEÐFERÐAR NÆST GEGN DÖKKUM HÁRUM. HÁR GETA ORÐIÐ LITMINNI UPP ÚR TVÍTUGSALDRI ÁN ÞESS AÐ VIÐ VERÐUM VÖR VIÐ ÞAÐ OG ÞAR MEÐ MINNKAR ÁRANGUR LASERMEÐFERÐAR.

Gallar lasermeðferðar

  • Meðferðir geta valdið vægum roða sem gengur hratt yfir. Mikilvægt er að roði hafi gefið sig áður en maður fer í sól. Sé það ekki gert er mögulegt að fram komi litamunur í húðinni sem getur tekið svolítinn tíma að hverfa. Lýst hefur verið tilfellum þar sem slíkur litur gefur sig ekki alveg.
  • Allir laserar geta mögulega valdið örum en þau tilheyra til algjörra undantekninga.
  • Notkun lasera er örugg í réttum höndum. Hún krefst umsjónar eða meðferðar sérfræðilæknis sem getur TAFARLAUST gripið inn í verði vart við aukaverkanir.

ÖRYGGISVIÐVÖRUN!
AF ÖRYGGISÁSTÆÐUM ER LASERMEÐFERÐ Í FEGRUNARSKYNI BÖNNUÐ Á ÍSLANDI ÁN AÐKOMU LÆKNIS MEÐ VIÐEIGANDI SÉRFRÆÐIMENNTUN SVO SEM HÚÐLÆKNIS EINS OG KRAFIST ER Í DANMÖRKU. TIL ERU ÓLÖGLEGIR HEILBRIGÐISSTARFSMENN SVO SEM LÆKNAR EÐA HJÚKRUNARFRÆÐINGAR SVO OG SNYRTIFRÆÐINGAR MEÐ SLÍKA STARFSEMI.

Háreyðing með rafstraum eða „blend“ tækni

Hárrætur eru skaðaðar með rafstraum og hita bætt við (blend) séu hár gróf eða liðuð. Ef vel tekst til er um endanlegt hártap að ræða óháð lit háranna. Meðferðin kann að valda örum og hefur að mestu verið leyst af hólmi með aðferðunum að ofan.

Fræðsla um háreyðingu

Myndbönd

Greinar

Sjá einnig greinina:

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út