BHA er þráavarnarefni (antioxidant) sem er stundum að finna í matvælum eins og morgunkorni, ís, tyggjó, ávöxtum og drykkjum.
Bætiefnum (food additives) í mat er gefið svokallað „E“ númer þar sem „E“ stendur fyrir „Evrópu“. BHA hefur E númerið 320 en skrána má finna í heild á netslóðinni http://www.ukfoodguide.net/enumeric.htm.
BHA er að finna í:
- snyrtivörum
- vörum sem innihalda vaselín
- útvortis lyfjum eins og kremum
- dýrafóðri
- plasti
- lími
- gúmmíi.
Það getur valdið loftbornu snertiofnæmi (airborne contact allergy) og aflitað húð.
BHA gengur m.a. undir eftirfarandi heitum:
- 3‐tert‐butyl‐4‐hydroxyanisole (nafnið BHA er dregið af þessu heiti)
- 4‐methoxy‐2‐t-butylphenol
- Antrancine 12
- Embanox
- Nipantiox 1‐F
- Phenol (1,1‐dimethylethyl)‐4‐methoxy
- Sustane 1‐F
- Tenox BHA
- Vyox