Skip to main content

Óhófleg svitamyndun

Óhófleg svitamyndun er ástand sem getur varðað handakrika, lófa, fætur eða líkamann í heild. 
Margir þættir geta valdið óhóflegri svitamyndun og því þarf læknir að meta hvert tilfelli fyrir sig. 

 

Meðferð með svitastöðvandi efni

  • Virkni slíkrar meðferðar er einstaklingsbundin en áhrifin vara jafnan í 3-10 mánuði 

 

Aðrar meðferðir

  • Útvortis meðferðir duga oft skammt ef svitamyndun er óhófleg 
  • Skurðaðgerðir til að fjarlægja kirtla eða klippa á taugar skilja eftir sig ör 
  • Önnur meðferðarúrræði eru fareindalækning og lyfjameðferð 

Hvernig bóka ég meðferð gegn óhóflegri svitamyndun?

  • Við mælum með tíma hjá húðlækni til að tryggja rétta greiningu og viðeigandi meðferð
  • ATHUGIÐ að til eru meðferðaraðilar á Íslandi án nauðsynlegra leyfa sem krefja viðeigandi sérfræðimenntunar umsjónalæknis
  • Þú getur hringt í okkur til að fá tíma hjá húðlækni eða beint til meðferðar

 

Hvers vegna myndast þetta?

Margir þættir geta verið valdir að þessum vandamálum. Meta þarf læknisfræðilega hvert tilfelli fyrir sig til að komast að mögulegum orsökum.

Hvað er til ráða?

Útvortis meðferð

Margar útvortis meðferðir eru til en oft duga þær ekki og er þá gripið til eftirfarandi meðferðarúrræða:

Meðferð í holhendur og hendur með svitastöðvandi efni

Hvað er svitastöðvandi efni?

Hér er á ferðinni svitastöðvandi prótein sem notað er í margs konar öðrum læknisfræðilegum tilgangi en frægust er trúlega notkunin við hrukkum.

Myndband

Greinar

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðin hefst á því að borin eru efni á meðferðasvæðin til að unnt sé að sjá nákvæmlega svæði hinnar auknu svitaframleiðslu. Holhendur eru deyfðar læknisfræðilega með kremi með deyfilyfi í u.þ.b. 2 klst en hendur leiðsludeyfðar. Fólk hefur gjarnan með sér lestrarefni því það vistast hjá okkur á meðan á deyfingu stendur. Er deyfingin hefur tekið er efninu komið fyrir á viðkomandi svæði. Sjálf meðferðin tekur oft um 20 mínútur. Fólki er ráðlagt að taka það rólega strax eftir meðferðina og þegar um holhendur er að ræða að leggjast ekki út af fyrr en að kvöldi.

Hvenær koma áhrifin fram og hve lengi vara þau?

Áhrifin koma fram á nokkrum dögum. Lengd virkninnar er einstaklingsbundin. Algengt er að meðferð sé endurtekin að ári þó flestum finnist þá svitaframleiðslan talsvert minni en fyrir meðferð. Komi ekki til endurmeðferðar næst aftur fyrra ástand.

Í völdum læknisfræðilegum tilvikum er beitt annarri lyfjameðferð.

Meðferð með fareindalækningu (iontophoresis)

Hvað er fareindalækning og hvernig fer meðferðin fram?

Fareindalækning byggir á tækjabúnaði sem samanstendur af vatnsbala og tæki sem gefur frá sér vægan rafstraum í vatnið í balanum. Meðferðarsvæðinu er stungið í vatnsbalann og síðan er settur vægur straumur á tækið. Rafstraumurinn fær leiðni í gegnum vatnið inn í húðina. Verkunarháttur fareindalækningar er ekki vel þekktur í dag en álitið er að straumurinn og steinefni í vatninu leiði til þykknunar yfirborðs húðþekjunnar sem lokar fyrir flæði svita út á yfirborð húðarinnar. Sjá nánar um fareindalækningu á heimasíðu heimssamtaka ofsvitunnar, International Hyperhidrosis Society http://www.sweathelp.org/ 

Hvenær koma áhrifin fram og hve lengi vara þau?

Áhrifin koma yfirleitt fram á nokkrum vikum en endurtaka þarf meðferð reglubundið til að afra ofsvitun.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út