Thimerosal er notað til sótthreinsunnar og einnig sem rotvarnarefni í snyrtivörur eins og t.d.: mascara og hreinsivökva án sápu. Það er einnig stundum notað í:
- augndropa
 - linsuvökva
 - eyrnadropa
 - nefdropa
 - munnskolsvökva
 - sápu
 - örverueyði (germicide)
 - plágueyði (pesticide).
 
Thimerosal getur verið að finna í útvortis vörum til lækninga eins og t.d.:
- kremum
 - bóluefni til bólusetningar
 - móteitri (antitoxin)
 - í efniviði til afnæmingar (desensitization) gegn ofnæmi
 - til ofnæmisprófunnar.
 
Thimerosal gengur einnig undir heitinu Merthiolate en einnig undir eftirfarandi heitum:
- Benzoic acid (Slæmt að skuli hafa þetta heiti því hér er í reynd um annan ofnæmisvaka að ræða (sjá sér flipa).
 - Ethylmercurithiosalicylate/ Ethylmercurithiosalicylic acid sodium salt
 - Elcide
 - Mercurochrome
 - Mercurothiolate
 - Merfamin
 - Merseptyl
 - Mertorgan
 - Merzonin
 - Merzonin sodium
 - Nosemack
 - SET
 - Sodiumethylmercurithiosalicylate
 - Thiomersalan
 - Thiomersalate
 
				

