Skip to main content
Snertiofnæmi

Methyldibromoglutaronitrile (Methyldibromo glutaronitrile eða MDBGN)

Eftir maí 30, 2012Engar athugasemdir

Þessi ofnæmisvaki er rotvarnarefni sem er að finna í fjölda vara eins og:

  • snyrtivörum
  • sápum
  • sjampóum
  • málningu
  • uppleystum litarefnum
  • hreinsiefnum

Blandan Euxyl K400 samanstendur af þessu rotvarnarefni og 2-phenoxyethanol sem jafnframt er ofnæmisvaki. Hafi maður ofnæmi fyrir MDBGN er ekki þar með sagt að maður hafi einnig ofnæmi fyrir 2-Phenoxyethanol. MDBGN er einnig að finna í vökvum sem notaðir eru í málmskurði og límum.

Önnur nöfn á þessu rotvarnarefni eru:

  • Dibromodicyanobutane
  • 1,2-dibromo-2,4-dicyanobutane
  • 1,2-dibromodicyanobutane
  • 1,2-dibromo-2,4-dicyanobutane
  • 2-bromo-2 (bromomethyl) glutaronitrile
  • Tektamer 38
  • 2-bromo-2(bromomethyl) pentanedinitrile

Þessi ofnæmisvaki hefur verið bannaður í Evrópu.

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út