Þennan ofnæmisvaka er að finna í gúmmíframleiðslu og getur hann verið til staðar í náttúrulegu gúmmíi, bútýlgúmmíi, nítril og neoprene. Hann er að finna víða, t.d. í:
- límböndum
- plástrum
- efnum sem vinna gegn ryði og frosti
- blöðrum
- sementi
- smokkum
- hreinsiefnum
- heyrnartólum
- teygjanlegum fatnaði
- rafmagnssnúrum
- strokleðrum
- sveppadrepandi efnum
- garðslöngum
- hönskum
- lími fyrir leður og plast
- lækningavörum
- gúmmíböndum og fatnaði
- gúmmíhandföngum og tólum
- gúmmíkoddum og lökum
- skóm, stígvélum
- öryggisgleraugum
- stuðningssokkum
- sundfatnaði og gleraugum
- hjólbörðum og slöngum
- leikföngum
- dýralyfjum
Vörur sem innihalda þennan ofnæmisvaka eru stundum merktar með eftirfarandi nöfnum:
- 2-benzothiazolethiol
- 2-benzothiazolinethione
- Benzothiazole-2-thione
- 2-benzothiazolylmercaptan
- Captax
- Dermacid
- MBT
- Mertax
- Nocceler M
- Rotax
- Thiotax
Ráðlegt er að lesa á innihaldslýsingu sem fylgir viðkomandi vöru og ef um þennan ofnæmisvaka er að ræða að nota þá frekar vöru úr:
- vinyl
- plasti
- leðri
- við
- spunavöru
- silikoni
- polyurethane
- polyethylene
- akrýlötum
Náttúrulegt gúmmílatex (natural rubber latex) inniheldur ekki þennan ofnæmisvaka sé um hreina framleiðslu að ræða.
Þennan ofnæmisvaka er gjarnan að finna í gúmmískófatnaði. Hér eru nokkrar ráðleggingar:
- Veljið frekar leðurskó eins og mokkasíur eða viðarklossa með engu innra gúmmíi eða gúmmísólum.
- Gætið þess að leðurskór geta innihaldið ofnæmisvakann í sólum, líningum eða í lími.
- Notið innlegg án ofnæmisvakans.
- Hendið sokkum sem kunna að hafa mengast af ofnæmisvakanum í gúmmíí í skófatnaði því illa gegnur að þvo ofnæmisvakann úr þeim.
- Spyrjið um gúmmífría skó í skóbúðum.
- Kannið á netinu með verslanir sem kunna að selja gúmmífría skó.
- Gangi ykkur illa að finna skófatnað, snúið ykkur þá til læknis.