Kóbalt er málmur sem er að finna víða í umhverfi okkar. Hann er notaður m.a. í:
- rennilása
- lykla
- eldhúsáhöld
- skartgripi
- greiður
- hnappa
- sement
- keramik
- hreinsivörur
- svitalyktareyða
- hárlitunarefni
- snyrtivörur
- málningu fyrir gler og postulín til að framkalla bláan lit
- efnivið til tannlækninga (dental biomaterials) í bæklungarlækningum
Hann er að finna í B12 vítamíni og stundum í mat .
Hann er stundum notaður í:
- alls kyns iðnað til að búa til lit
- í polyesteriðnað
- akrýlataiðnað
- gúmmíiðnað
- prentblek
- húðflúr
Reyna má að aftra snertingu við þennan málm með hönskum eða með því að hylja það sem inniheldur málminn, t.d. með því að setja plasthylki á lykla. Til eru eðalskartgripir án kóbalts.
Lýst hefur verið versnun útbrota eftir inntöku kóbalts.
Kóbalt gengur stundum undir nöfnunum:
- cobalt blue
- cobalt chloride
- cobaltous chloride
- cobalt (II) chloride hexahydrate
Hann er oft í blöndum með nikkel og þannig finnast þessir málmar oft saman í sömu vörunni.