Skip to main content
Snertiofnæmi

Dimethylaminopropylamine (3-(Dimethylamino)-1-propylamine eða DMPA)

Eftir mars 30, 2013Engar athugasemdir

Þetta efni er milliefni (intermediate substance) við framleiðslu efnasambandana alkylamidopropyldimethylami­nes og alkylamidobetaines. Það er að finna sem óhreinindi (impurity) við framleiðslu yfirborðsefna (surfactants) og er þannig að finna í þeim þegar þau eru notuð í snyrtivörur, hárlöður, fljótandi sápur og ýmsar vörur til hirðu húðar og hárs. Það er einnig stundum notað sem milliefni við framleiðslu lita og er því stundum að finna í þeim.

Dimethylaminopropylamine er stundum notað til að herða epxoy resin (sjá flipann „Bisphenol A epoxy resin“). Því er einnig stundum bætt í eldsneyti og varnarefni (pesticide) eða notað sem bindiefni (binding agent).

Þetta efni er einnig stundum notað við framleiðslu jónaskipta (ion-exchangers) og í leður-, pappírs- og gúmmíiðnað. Það er einnig stundum notað við framleiðslu taumýkjara (fabric softeners).

Dimethylaminopropylamine hefur númerið 109-55-7 í CAS kerfinu (Chemical Abstract Service (CAS) registry numbers). Sjá nánar á http://www.cas.org/expertise/cascontent/registry/regsys.html .

Þetta efni gengur a.m.k. einnig undir eftrirfarandi heitum:

  • 1,3-Propanediamine, N,N-dimethyl-
  • 1-(Dimethylamino)-3-aminopropane
  • 1-Amino-3-dimethylaminopropane
  • 3‐(dimethylamine)propylamine
  • 3-(Dimethylamino)-1-propanamine
  • 3-(Dimethylamino)-1-propylamine
  • 3-(Dimethylamino)propylamine
  • 3‐Aminopropyldimethylamine
  • 3-Amino-1-(dimethylamino)propane
  • 4-04-00-01259 (Úr Beilstein Handbook Reference)
  • AI3-25441
  • BRN 0605293
  • CCRIS 4799
  • EINECS 203-680-9
  • HSDB 5391
  • N,N-Dimethyl-1,3-diaminopropane
  • N,N-Dimethyl-1,3-propanediamine
  • N,N-Dimethyl-1,3-propylenediamine
  • N,N-Dimethyl-N-(3-aminopropyl)amine
  • N,N-Dimethylpropylenediamine
  • N,N-Dimethyltrimethylenediamine
  • N-Dimethyltrimethylenediamine
  • NSC 1067
  • Propylamine, 3-(N,N-dimethylamino)- gamma-(Dimethylamino)propylamine

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út