Propyl gallate er þráavarnarefni (antioxidant) sem er að finna í snyrtivörum eins og hárvörum, vaxi og vörum til lækninga. Það er einnig oft að finna í sleipiefni og lími.
Propyl gallate getur verið að finna í matvælum eins og:
- smjöri
- hnetusmjöri
- olíum
- fitu
- bragðefnum.
Slíkum bætiefnum í mat (food additives) er gefið svokallað „E“ númer þar sem „E“ stendur fyrir „Evrópu“. Propyl gallate hefur E númerið 310 en skrána má finna í heild á netslóðinni http://www.ukfoodguide.net/enumeric.htm.
Propyl gallate gengur einnig undir eftirfarandi heitum:
- 3,4,5‐trihydroxybenzene‐1‐propylcarboxylate
- 3,4,5‐trihydroxybenzoic acid propyl ester
- Gallic acid propyl ester
- n‐propyl gallate
- N‐propyl 3,4,5‐trihydroxybenzoate
- Npropyl ester of 3,4,5‐trihydroxybenzoic acid
- Nipa 49
- Nipagallin p
- PG
- Progallin P
- Propyl 3,4,5-trihydroxybenzoate
- Propyl gallate
- Propylester kyseliny gallove
- Tenox PG