Octyl gallate er þráavarnarefni (antioxidant) sem er að finna í snyrtivörum og vörum til lækninga.
Octyl gallate getur verið að finna í matvælum eins og smjöri og hnetusmjöri. Slíkum bætiefnum í mat (food additives) er gefið svokallað „E“ númer þar sem „E“ stendur fyrir „Evrópu“. Octyl gallate hefur E númerið 311 en skrána má finna í heild á netslóðinni http://www.ukfoodguide.net/enumeric.htm.
Octyl gallate veldur stundum loftbornu snertiofnæmi (airborne contact allergy).
Octyl gallate gengur einnig undir eftirfarandi heitum:
- 3,4,5-trihydroxybenzoic acid, octyl ester
- C6H2(OH)3COOC8H17
- E-311
- Gallic acid, octyl ester
- Octyl 3,4,5-trihydroxybenzoate