Skip to main content
Snertiofnæmi

Ethylhexylglycerin

Eftir ágúst 10, 2016Engar athugasemdir

Ethylhexylglycerin er alkýlglýcerýleter efnafræðilega. Það þýðir að etýlhexýl hópurinn í mólikúlinu er bundinn glýceríni með etertengi. Alkýlglýcerýletrar eru á föstu formi í herbergishita og leysast illa í vatni.

Hér er á ferðinni ofnæmisvaki sem notaður er útvortis sem svitalyktareyðir (deodorizing agent) og í ýmsar útvortis húðvörur svo sem krem og þá ekki síst til sólarvarnar, baðvörur, hreinsivörur, augnmálningu, hárvörur og farða benicar hct.

Standi „conditioning ointment“ á vörum sem notaðar eru útvortis m.a. á húðkremum kunna þau að innihalda þennan ofnæmisvaka.

Ethylhexylglycerin er stundum notað til að hafa áhrif á yfirborðsspennu vara sem notaðar eru útvortis. Það getur aukið á rotvörn og er stundum notað í stað parabena í vörur.

Hafa ber í huga að alkýlglýcerýletrarnir batyl alkóhól og chimyl alkóhól (stundum kallað cetýlglýcerýleter) eru stundum notaðir til að gefa til kynna alkýlglycerýletra á snyrtivörum. Ber því að varast vörur með þessum merkingum.

Þessi ofnæmisvaki gengur a.m.k. einnig undir eftirfarandi heitum:

Ethylhexyl glycerin
Sensiva CS 50

BÓKA TÍMA / BOOK AN APPOINTMENT

    * þýðir að þú þarft að fylla út